Dags: 31.01.2006 17:36
Í dag birti dómstóll ÍSÍ niðurstöðu sína í kærumáli Bjarnarins gegn SA, en Björninn kærði SA fyrir að nota ólöglegan erlendan leikmann, Jan Kobezda, í innbyrðisleik liðanna þann 14. janúar 2006, en þennan leik vann SA 2-6. Í þessu máli er m.a. tekist á um ákvæði í reglugerð ÍHÍ, 10.7.2, sem segir að "Erlendir leikmenn skulu ekki hljóta keppnisleyfi eingöngu fyrir úrslitakeppni, heldur þurfa þeir að hafa leikið með liði sínu a.m.k. fjórar síðustu umferðir undankeppni". Í dómsorði segir m.a.: "Það er álit dómsins að ákvæðið eigi einungis við leiki í úrslitakeppni en ekki leiki í undankeppni. Liðum er þannig frjálst að nota hvaða leikmenn sem er í undankeppni sem eru með gilda leikheimild. Það reynir ekki á ákvæðið fyrr en leikmönnum er telft fram í leikjum í úrslitakeppni, en þá þurfa þeir að hafa leikið með liði sínu a.m.k. fjórar síðustu umferðir undankeppni til þess að vera löglegir og gildir það einnig um leikmenn í leikbanni. Þetta mál er því höfðað um rétt eða skyldu sem sýnt er að ekki er enn orðin til og ber því að vísa því frá dómi". Skv. þessari niðurstöðu mæta SR-ingar SA í Úrslitakeppnini, einsog stigastafla undankeppninnar segir til um, en ekki Birninum, hefði úrskurðurinn fallið Birninum í vil. En hvað veit maður? Dómsorð öll má lesa á heimasíðu SA.