Dags: 27.01.2006 18:05
Þjálfari SR-inga, Ed Maggiacomo, hefur þann háttinn á að fjalla um leiki SR í "Þjálfarahorninu". Í dag birtist umsögn hann um síðustu þrjá leikina. Á morgun er hins vegar nýr leikur sem skiptir mestu máli en þá mæta SR-ingar SA í skautahöllinni á Akureyri. Í Þjálfarahorninu kemur fram að Ed er sérstaklega ánægður með síðasta leik liðsins, gegn Birninum, enda var frammistaða liðsins þar með miklum sóma. En nú tekur alvaran aftur við og SR-ingar verða að fylgja þessu eftir.