Fréttir

Total items: 1194

Endurtekning í seinni leik

Dags: 22.01.2006 10:37


Í gærkvöldi mætti SR liði Narfa í seinni leik þessara liða um þessa helgi. Óhætt er að segja að SR-ingar hafi mætt mun ákveðnari til leiks þar sem þeir sýndu töluvert meiri hraða í sínu spili, sendingar voru betri og áhuginn meiri. Auk þess héldu SR-ingar keyrslunni áfram alla loturnar en leiknum lauk með 9-0 sigri (3-0, 3-0 og 3-0). Sem fyrr buldu skotin á Gunnlaugi markmanni Narfa sem varði mjög vel. Sama má segja um markmann SR, Aron, sem varði 19 skot, og mörg þeirra erfið. Narfi fékk sem sagt sín tækifæri í leiknum sem fóru forgörðum. Leikmenn SR áttu góðan dag en áberandi frískastir og ógnvekjandi voru þeir Andy og Þorsteinn í sókninni og Kári í vörninni, ásamt Aron markmanni. Þá sýndi Zdenek oft glæsilega tilburði og Gauti fór vel af stað. Hjá Narfa var Gunnlaugur markmaður í aðalhlutverki, greinilega að komast í sitt gamla form, og svo Sigurður Sig sem stýrði leik Narfa af mikilli skynsemi - ótrúlegt hvað reynsla skilar miklu í svona leik.

Leikinn dæmdi Berglind Gísladóttir og fórst það vel úr hendi. Á köflum var leikurinn nokkuð harður en hún hafði góða stjórn á því. Til gaman má geta þessa að faðir hennar, Ólafur, var annar aðstoðardómaranna. Örugglega fátítt í hópíþrótt í meistararflokki að feðgin sjái um dómgæslu!

Mörk og stoðsendingar SR: Zdenek 2/3, Gauti 2/1, Andy 2/0, Mirek 1/2, Sindri 1/1, Þorsteinn 1/1, Stefán 0/3, Helgi 0/1, Rúnar 0/1 og Úlfar 0/1.