Fréttir

Total items: 1194

Skyldusigur hjá SR

Dags: 21.01.2006 12:08


runar_freyr_runarsson.jpg

Í gærkvöldi tók SR á móti Narfanum úr Hrísey í Íslandsmóti karla. Bæði lið stilltu upp sínu sterkasta liði en berlega kom þó í ljós að leikformið var ekki með besta móti hjá liðunum því illa gekk að að láta pökkinn ganga og hraðinn minni en við eigum að venjast, sérstaklega hjá SR. Þrátt fyrir þetta varð fljótt auðséð hvert stefndi í þessum leik þar sem yfirburðir SR voru talsverðir, ef metið er út frá fjölda skota og sóknarþunga. SR gekk hins vegar illa að skora og kannski fyrst og fremst vegna stórgóðrar markvörslu hjá Gunnlaugi í marki Narfa en SR átti 63 skot að marki. Mörkin komu þó jafnt og þétt, sum þeirra mjög góð einsog marki hjá Guðmundi, viðstöðulaus þrumufleygur af löngu færi. Narfi fékk sín færi í þessum leik en Birgir í marki SR var mjög öruggur og tók þessi skot. SR á þó að geta spilað miklu betur og hraðar en þetta. Lykilmenn voru frekar daufir en það getur breyst er SR mætir aftur Narfa í kvöld.

Rúnar Rúnarsson lék sinn fyrsta leik með SR í gærkvöldi og er ljóst að hann á eftir að styrkja lið SR það sem eftir er vetrar. Við bjóðum hann velkomin í hópinn. Að lokum er rétt að þakka enn og aftur Carol fyrir glæsilega leikskrá og enn og aftur hvetjum við hin liðin að feta í fótspor SR-inga með kynningarefni á meistaraflokksleikjum.

SR: mörk og stoðsendingar: Stefán 2/0, Andy 1/0, Guðmundur 1/0, Kári 1/0, Sindri 1/0, Zdenek 0/4, Gauti 0/1, Mirek 0/1 og Steinar 0/1.