Fréttir

Total items: 1194

SR - Björninn í 2. flokki

Dags: 18.01.2006 17:47


Í gærkvöldi mættust SR og Björninn í 2. fl. í Íslandsmótinu, en þessi leikur fór fram í Egilshöll. Fyrirfram var búist við að þetta yrði erfiður leikur fyrir okkar stráka því liðið hefur innanborðs hvorki meira né minna en 7 leikmenn úr 3. flokki og sterkir varnarmenn hafa auk horfið úr röðum þeirra. Á meðan gat Björninn teflt fram mjög reynslumiklu liði en margir í liði þeirra eru fastir leikmenn hjá meistaraflokki. Þessi reynslu- og aldursmunur kom enda glögglega fram í leiknum þar sem Björninn gat haldið uppi góðu spili þar sem hver leikmaður þekkti sína stöðu. Svo fór að SR tapaði þessum leik 16-6. Í þessum leik fékk SR á sig alltof mörg ódýr mörk sem sló liðið út af laginu. Greinilega kom fram hversu mikið vantar upp á leikform SR í þessum flokki, enda kannski ekki furða þar sem 2. flokks strákarnir voru að leika sinn annan leik í vetur og strákarnir úr 3. flokki höfðu einungis leikið 3 leiki í vetur. Á sama tíma hafa leikmenn sem spila reglulega með meistaraflokki fengið 10 - 15 leiki í vetur. Þetta þarf að laga því þarna eru áhugasamir strákar sem vilja spila hokkí. Kannski má hugsa sér nýtt fyrirkomulag á Íslandsmótinu í þessum flokki til að mæta metnaði og vilja þessara stráka, sem eru enn of ungir og reynslulitlir til að taka fullan þátt í leikjum meistaraflokks.