Dags: 09.01.2006 19:41
Eftir stórgóða frammistöðu á heimsmeistaramótinu í Litháen þurftu okkar strákar að játa sig sigraða gegn gestgjöfunum, Litháen, fyrir fullu húsi, 2-5. Í gær lagði Ísland lið Búlgaríu 11-0 sem þýddi að leikurinn í dag myndi verða hreinn úrslitaleikur um gullið. Eftir að staðan var 1-1 eftir fyrstu lotu kom slæmur kafli í annarri lotu sem gaf gestgjöfunum 3 mörk. Þriðju lotu lauk síðan einnig með jafntefli, 1-1. Þrátt fyrir naumt tap er frammistaða liðsins á mótinu Íslandi til sóma, en liðið vann auðvelda sigra á Armeníu, Tyrklandi og Búlgaríu. Til hamingju með silfurverðlaunin strákar! Ísland U20 mun því að ári leika í annarri deildinni.