Dags: 18.12.2005 17:05

Narfi tók á móti SR í gærkvöldi. Þetta var leikur sem sumir biðu eftir vegna þess að SR spilaði án útlendinganna þennan leik, Narfi mætti líka til leiks með 12 útileikmenn. Var það spennandi að sjá hvernig þeim gengi þannig. Leikurinn var jafn og spennandi en SR átti samt heldur undirtökin í leiknum framan af, en virtust missa niður leikinn í 3 leikhluta. Það var mikill munur að sjá Narfa með allan þennan mannskap en það sást ekki til þeirra þreitan sem oft hefur einkennt seinni hluta leikja þeirra.
Leikurinn fór 6 - 3 fyrir SR (3-1, 3-1, 0-1)
SA og Björninn spiluðu fyrri leik dagsins og fór hann 11 - 4 fyrir SA.
HV