Fréttir

Total items: 1194

SR gegn Narfa í kvöld

Dags: 17.12.2005 14:25


SR heldur norður í land í dag en í kvöld mæta þeir Narfa í Íslandsmóti karla. Fyrr um daginn mæta svo Akureyringar liði Bjarnarins í leik sem getur haft mikil áhrif á það hvort liðanna fylgir SR í Úrslitakeppnina. Þessi leikur verður því rafmagnaður og skemmtilegur. SR siglir hins vegar frekar lygnan sjó en mæta eflaust mikilli mótspyrnu Hríseyinga sem alltaf geta komið á óvart.