Dags: 10.12.2005 12:30
Þessa helgi fer fram á Akureyri minningarmót um Magnús Einar Finnsson, formann Skautafélags Akureyrar og stjórnarmann í Íshokkísambandinu, sem lést fyrr á þessu ári. Þátt taka "old-boys" lið frá SA, SR og Birninum. Mótið hófst í gærkvöldi en svo verður leikið í dag. Einn hápunktur mótsins er þegar úrsvalslið skipað leikmönnum 40 ára og eldri mætir kvennaliði SA.
Stefnt er að því að gera þetta mót að árlegum viðburði líkt og tekist hefur með Sveinsbikarinn sem er í minningu Sveins Bakara Kristdórssonar.