Fréttir

Total items: 1194

SR - Björninn í Laugardalnum

Dags: 07.12.2005 21:33


sr_bj_logo.jpg

SR mætir Birninum á fimmtudagskvöldið í Íslandsmóti karla en þessi leikur fer fram á heimavelli SR, Laugardalnum. Þessi viðureign verður fróðleg því SR tapaði sínum síðasta leik sínum, gegn SA á laugardagskvöldið, á meðan Björninn berst harðri baráttu við SA um að komast í Úrslitakeppnina. Leikurinn hefst kl. 20:30 og við hvetjum nú íshokkíunnendur til að mæta í dalinn. Er SR búinn að gleyma laugardagskvöldinu eða situr það enn í þeim? Það kemur í ljós.