Dags: 04.12.2005 03:56
Ekki tókst SR-ingum að vinna 10. sigurinn í röð er þeir mættu SA á laugardagskvöldið en úrslit leiksins urðu 3 - 5 fyrir SA. Þar sem "fréttamaður" SR hafði öðrum hnöppum að hneppa á laugardagskvöldið fer lítið fyrir lýsingu á þessum leik. Vísa má þó t.d. í umfjöllun ÍHÍ fyrir áhugasama (sjá hér) og Ed þjálfari skrifar um leikinn í "Þjálfarahornið" þar sem hann segir m.a: "Stundum þarf að tapa til að minna okkur á að hin liðin eiga bara eftir að verða betri. Við verðum að leggja harðar að okkur til að halda stöðu okkar og bæta jafnvel við. Núna verðum við að ná okkur aftur á strik og leika einsog við vitum að við getum gert . leika í samræmi við hæfileikann í liðinu". Svo mörg voru þau orð.
Að leik loknum á laugardagskvöldið var leikmönnum beggja liða, forráðamönnum og starfsliði boðið í hangikjetsveislu í félagssal SR. Þar var étið mikið og rætt um hokkí og ekki var annað að heyra en að mönnum hafi líkað vel. SR vill kom á framfæri þakklæti sínu til allra þeirra foreldra í SR sem stóðu að þessum veisluhöldum, en yfirumsjón var í höndum Kolbrúnar og Hjörleifs sem brugðust náttúrulega ekki vonum manna. Þetta var skemmtilegur endir á góðu hokkíkvöldi.