Fréttir

Total items: 1194

SR mætir SA um helgina

Dags: 01.12.2005 17:50


SRSAcombo.jpg

Á laugardagskvöld kl. 19:00 mæta SR-ingar SA í Íslandsmóti karla, en þessi leikur fer fram í Laugardalnum. Þetta er næst síðasti heimaleikur SR á þessu ári en þeir eiga eftir heimaleik við Björninn 8. des. og einn útileik, gegn Narfa, á Akureyri. Við hvetjum allt okkar stuðningsfólk til að mæta nú í Laugardalinn og styðja við bakið á okkar mönnum. SR hefur unnið alla sína leiki til þessa en önnur félög leggja allt kapp á að verða fyrst til að leggja SR-inga að velli. Því má búast við harðri mótspyrnu SA í þessum leik.

Á undan leiknum fer fram kynning á íshokkí sem SR heldur fyrir fréttamenn en þeim er boðið í félagssal SR kl. 17:00 þar sem Ed þjálfari mun sýna myndir og halda smá fyrirlestur. Svo má minna á að eftir leikinn verður slegið upp hangikjetsveislu með laufabrauði að norðlenskum sið fyrir bæði liðin og starfsfólk og velunnara SR.