Dags: 19.11.2005 11:58
Dómaranefnd ÍHÍ mun reyna að fá sem flesta til að taka línudómarapróf í íshokkí. Ætlunin er að vera með línudómaraprófið næstkomandi þriðjudag og miðvikudag á æfingatíma. Prófið er öllum opið og þeir sem ná að standast það próf geta dæmt íshokkíleiki í framtíðinni.
Leikmenn í 3, 2 og Meistaraflokki eru sérstaklega hvattir til að taka þetta próf þar sem þetta er góður undirbúningur fyrir dómara framtíðarinnar.
Hægt er að skoða þær spurninagar sem munu koma á prófinu með því að smella hér.