Dags: 17.11.2005 17:13
Um helgina fer fram í Skautahöllinni í Laugardal mót öldunga í íshokkí sem ÍT Travel og SR standa fyrir. Þátt taka SR, Björninn og SA ásamt tveimur liðum frá Bandaríkjunum, Fitchburg Kings og Fitchburg NHL. Fyrsti leikurinn hefst kl. 21:00 á föstudagskvöldið en þá mætast SR og Fitchburg Kings en alls verða þrír leikir þetta kvöld. Mótið heldur svo áfram kl. 18:15 á laugardagskvöldið.