Fréttir

Total items: 1194

Byrjuðu illa en enduðu vel...

Dags: 13.11.2005 16:46


dsc_4302I1I.jpg

Eitthvað voru SR-ingar hálf áttaviltir og illa fyrirkallaðir í upphafi leiks þegar SR heimsótti Skautafélag Akureyrar í gærdag.  Heimamenn riðu á vaðið og skoruðu fyrsta markið.  SR-ingar voru einungis skugginn af sjálfum sér fyrsta leikhlutann, spilið handahófskennt og óagað.  En SR-ingum tókst að skora áður en lotan var úti.  Í öðrum leikhluta voru SR-ignar eitthvað farnir að vakna til lífsins og virtust farnir að átta sig á stöðunni, en ekki virtist það vera nóg því að heimamenn náðu að komast yfir eftir alvarleg varnarmistök hjá SR þar sem þeir hleyptu leikmanni númer 25, Lubromir Bobik, framhjá sér sem náði að skora með góðu skoti.  SR-ingar, þá orðnir marki undir annað skiptið í leiknum, var ekki farið að lítast á blikuna.  En þegar leið á annan leikhluta settu SR-ingar í gír og skoruðu alls 3 mörk í öðrum leikhluta hvert öðru fallegra.  Þegar var farið inní 3 leikhluta var SR yfir með 2 mörkum. Í 3 leikhluta tóku SR-ingar leikin í sínar hendur og léku við hvern sinn fingur. Náð að nýta ágætlega sín powerplay og sóknirnar enduðu oftar með skoti.  Svo fór að SR skoraði 3 mörk í þeim leikhluta en SA aðeins eitt.

Það má segja að það erlendu leikmenn beggja liða hafi verið í aðalhlutverki í þessum leik. Lubromir Bobik fyrir SA sem skoraði öll þrjú mörk SA og síðan Zdenek Prohazka og Mirek Krivanek hjá SR.  Það þótt eftirtektavert að SR-ingar voru seinir í gang og á tilabili var óttast um sigur í leiknum. En að vanda hélt Ed Maggiacomo vel um sitt lið og hélt þeim góða pitla á milli leikhluta sem hleypti blóði í menn.

Ein flottasta tækling margra leikja leit dagsins ljós í leiknum í gær þegar Úlfar Andrésson tók sig til og tæklaði Lubromir Bobik hjá SA svo vel að hjálmurinn þeytist af Bobik og sat hann eftir, ringlaður, áttavilltur og forviða yfir því að þessi ungi og fríski leikmaður skuli hafa hammrað hann svona duglega.

Hvað sem því líður þá var þetta enn einn sigur fyrir SR, sem virðist sigra hvern leikinn á fætur öðrum einsog vel þjálfaðu her.  Næsti leikur SR verður 3.desember þannig að leikmenn fá nú góðan tíma til að stilla sína strengi fyrir næstu leikjatörn.

Leikurinn í tölum: SA-SR 3-7 (1-1)(1-3)(1-3)

SR mörk/stoð: #25 Zdnek Prochazka 3/1, #15 Mirek Krivanek 1/3,  Andy Luhovny 1/1, Gauti Þormóðsson 1/1, Þorsteinn Björnsson 1/0.

SA mörk/stoð: #25 Lubomir Bobik 3/0