Dags: 10.11.2005 12:08
Undanfarna viku hafa agamál innan íshokkíhreyfingarinnar verið mikið í umræðu fólks í þjóðfélaginu og fjölmiðlar tekið þar virkan þátt. Þá hefur og ÍSÍ tekið virkan þátt í þessari umræðu og m.a. haldið fund með stjórn Íshokkísambandsins um agareglur þar að lútandi í kjölfar ofbeldisins í leik SA og Bjarnarins þann 29. októbers. Vegna þessa hefur stjórn íshokkídeildar SR séð ástæðu til að koma sérstaklega á framfæri innanhússreglum um agamál hjá SR sem tóku gildi sl. vetur og gætu verið gott innlegg í umræðuna. Með komu nýs þjálfara til félagsins var síðan bætt við enn einni reglu til að sporna enn frekar við alvarlegum agabrotum. Í grófum dráttum ganga þessar reglur út á eftirfarandi:
Regla 1 Taki leikmaður þátt í slagsmálum í leik á vegum SR hlýtur hann æfinga- og leikjabann sem stjórn og þjálfari deildarinnar ákveða. Leikmaður fær ekki að hefja aftur æfingar að loknu banni fyrr en hann hefur mætt fyrir stjórn deildarinnar.
Regla 2 Verði leikmaður SR uppvís að því að beita fólskubroti í leik, sem dómari kemur ekki auga á, á hann einnig á hættu að verða dæmdur í æfinga- og leikbann.
Regla 3 Verði leikmaður uppvís að því að mótmæla dómum þannig að brottvísun fylgi í kjölfarið, verður leikmaður að greiða sekt í sjóð sem rennur til uppbyggingarstarfs innan deildarinnar.
Því er svo við að bæta að á síðasta tímabili fékk einn leikmaður SR bann sem féll undir reglu 1 að ofan (eins mánaðar bann) og annar fékk bann sem féll undir reglu 2 að ofan (tveggja vikna bann). Í vetur hefur ekki þurft að beita þessum reglum sem kannski undirstrikar, að mati stjórnar SR, að slíkar innanhússreglur eru árangursríkar. Það sem af er tímabilinu hefur tvisvar þurft að beita reglu 3 að ofan, og viðkomandi leikmenn greitt í nefndan sjóð. Stjórn SR hefur fulla trú á að reglur í þessum anda geta hjálpað mikið til að sporna við fólskubrotum og ofbeldi í íþróttinni. Stjórnin vill þó undirstrika að mjög lítill minnihluti leikmanna virðist vera gerendur í þessum málum og því sé kannski ástæða til að skoða málin sérstaklega út frá þeirri staðreynd. Þessu til viðbótar má benda á grein eftir Ed Maggiacomo aðalþjálfara SR (sjá GREINAR) þar sem hann fjallar sérstaklega um ábyrgð þjálfara er kemur að agamálum á ísnum.