Fréttir

Total items: 1194

Brynjumótið vel heppnað

Dags: 09.11.2005 17:45


brynjumot2005.jpg

Einsog allir vita fór Brynjumótið fram um síðustu helgi. Að þessu sinni fór mótið þannig fram að öllum þremur liðunum, þ.e. SA, SR og Björninn, var blandað saman og búin til ný lið sem kepptu innbyrðis. Mikil ánægja ríkti með þetta fyrirkomulag og voru þessir yngstu leikmenn okkar til fyrirmyndar, þar sem gleðin og einbeitingin (sjá mynd) sat í fyrirrúmi í hverjum leik. Við þökkum Akureyringum kærlega fyrir móttökurnar.