Fréttir

Total items: 1194

Hokkíleikur í dag !!

Dags: 08.11.2005 00:10


sindriskorar.jpg

Í dag mun SR heimsækja Bjarnarmenn í Egilshöll og leika við þá íshokkí. Mikil eftirvænting er fyrir þennan leik einsog aðra þá leiki sem þessi nágrannar hafa spilað það sem er af þessu tímabili. Búist er við margmenni á þennan leik og eflaust munu fjölmiðlamenn fjölmenna á þennan leik til að sjá hvort að hamagangur og villimennska síðasta meistaraflokksleiks muni endurtaka sig. SR-ingar eru ekki á þeim buxunum að fara inná ísinn til að berja á nokkrum manni, heldur til að spila gott íshokkí sem hefur einkennt leik liðsins þar sem af er vetri. Leikurinn verður eflaust skemmtilegur á að horfa því þessar viðureignir hafa þótt spennandi og mikið augnakonfekt. Gott ef ekki, að leikir þessara liða hafa farið prúðmannlegasta fram og samkvæmt þeim tölum, hjá þeim sem allt vita, þá hafa þessir leikir verið með þeim lægstu í refsimínútum á þessu tímabili.

Allir SR-ingar eru hvattir til að mæta á svæðið og hvetja sitt lið til dáða.....