Dags: 05.11.2005 14:56
Það fer ekki milli mála að uppákoma sú sem við urðum vitni að í leik milli Bjarnarins og SA um síðustu helgi hefur snert marga. Eftirfarandi frétt má lesa á heimasíðu Íþróttasambands Íslands:
"Á fundi framkvæmdastjórnar í gær, 3. nóvember, voru gerð að umtalsefni, átök sem urðu í íshokkíleik Bjarnarins og SA um síðustu helgi og sýnd hafa verið ítrekað í sjónvarpi. Atvikið og átökin er ekki góð ímynd eða auglýsing fyrir íþróttirnar og viðkomandi íþróttagrein.
Framvæmdastjórn ÍSÍ lítur þetta mál alvarlegum augum og telur sig það varða, með vísan til 4. gr. laga ÍSÍ um tilgang og markmið sambandsins, m.a. að tryggja að drengskapur ríki í íþróttum og ofbeldi sé bannað.
Úrskurður aganefndar ÍHÍ vakti og athygli í þessu samhengi.
Samþykkt var að senda bréf til Íshokkísambands Íslands og óska eftir upplýsingum um málið, agareglum sambandsins og öðrum vinnureglum í þessu sambandi".
Því er svo við að bæta að undir liðnum "GREINAR" er birt grein um þetta mál og á næstu dögum birtist þar önnur grein eftir þjálfara SR, Ed Maggiacomo, þar sem almennt er fjallað um agamál og ábyrgð leikmanna og ekki síst þjálfara.