Fréttir

Total items: 1194

Styttist í Brynjumótið

Dags: 02.11.2005 18:49


Um næstu helgi fer fram Brynjumótið á Akureyri en þátttakendur eru 5. til 7. flokkur. Að þessu sinni verður mótið með töluvert öðru sniði en undanfarin ár en nú verður leikmönnum liðanna þriggja, SR, SA og Bjarnarins, blandað saman í ný lið sem keppa síðan innbyrðis undir nýjum nöfnum. Þetta er svipað fyrirkomulag og SR og Björninn reyndu fyrir tveimur árum síðan á Reykjavíkurmóti og gafst sérstaklega vel. Með þessu móti kynnast leikmennirnir betur og liðin jafnast að getu. Þetta verður því mjög spennandi helgi fyrir yngstu leikmennina okkar. Dagskrá mótsins má nálgast hér.