Dags: 31.10.2005 17:48

Það hefur sjálfsagt ekki farið fram hjá neinum að Ed þjálfari Maggiacomo hefur dyggan aðstoðarmann sér til halds og trausts í störfum sínum. Eiginkona Eds, Carol, hefur alla tíð haft mikinn áhuga á íshokkí og oftar en ekki komið að ýmsum verkefnum tengt þjálfun Eds fyrir hin ýmsu félög. Við hér hjá SR erum svo lánsöm að njóta krafta hennar einnig en hún hefur tekið virkan þátt í starfsemi félagsins og skilið eftir sig fótspor. Má þar nefna að hún tekur upp alla leiki meistaraflokks, og hjá yngri flokkum, og sinnir ýmsum skrifstofustörfum fyrir félagið. Auk þess ber hún ábyrgð á hinni glæsilegu leikskrá sem gefin er út fyrir hvern heimaleik meistaraflokks, og er boðinn og búinn að taka að sér verkefni sem falla til hjá félaginu. Carol er einstaklega ljúf í framkomu, með góða þekkingu og mikinn áhuga á íshokkí. Við bjóðum hana velkomna í SR hópinn.