Fréttir

Total items: 1194

SR með öruggan sigur á Narfa, 15-4

Dags: 29.10.2005 21:54


Í kvöld tóku SR-ingar á móti Narfa í Laugardalnum en þessi lið mættust einnig um síðustu helgi, en þeim leik lauk með stórsigri SR. Narfinn mætti með góðan mannskap en það var augljóst í fyrstu lotu að skrekkur var í þeim eftir síðustu helgi. SR mætti lítilli andspyrnu í fyrstu lotunni og skutu Narfann beinlínis í kaf, 9-1. Það sem gladdi áhorfendur einna helst í þessari lotu var snilldarsending Zdeneks á Mirek í 9. markinu en þar notaði Zdenek battann á ótrúlegan hátt, eitthvað sem leikmenn gera annars alltof lítið af. Í annarri lotu héldu yfirburðirnir áfram en nú tókst Narfanum að verjast mun betur. Staðan 14-2 eftir aðra lotu. Í þriðju lotu hvíldi Ed þjálfi SR Tékkana Zdenek og Mirek og var augljóst að leikur SR-ingar riðlaðist mikið við þetta, þar leikmenn voru lengi að komast í gang. Narfi gekk á lagið og skoraði tvö mörk í þriðju lotu en SR aðeins eitt, og var þar að verki Sigmundur með fyrsta mark sitt fyrir SR. Til hamingju með það. SR sótti mun meira í þessari lotu en virtist fyrirmunað að klára sóknirnar með skoti. Þau skot sem rötuðu á mark Narfans varði Gunnlaugur vel. Annars var spilið tætingslegt og leikmenn SR virtust áhugalausir á að klára leikinn af krafti á meðan leikmenn Narfa færðust allir í aukana.

Erfitt er að meta frammistöðu SR í þessum leik þar sem leikurinn var svo kaflaskiptur. Það hlýtur þó alltaf að vera erfitt að girða sig í brók og fyllast eldmóði þegar yfirburðirnir eru slíkir einsog eftir fyrstu lotuna. Enn voru það Zdenek og Mirek sem blómstruðu, ásamt Andy sem barðist allan tímann af miklum krafti og var öðrum leikmönnum SR fyrirmynd. Leikurinn sýndi hins vegar að Narfi getur hæglega bitið frá sér enda eru þar innanborðs margir mjög reyndir leikmenn sem refsa grimmt fyrir mistök. Sérstaklega eru þeir skeinuhættir ef hraðinn í leiknum dettur niður.

Mörk og stoðsendingar SR: Mirek 4/2, Andy 2/1, Steinar Páll 2/1, Zdenek 1/4, Stefán 1/3, Helgi Páll 1/2, Úlfar 1/1, Gauti 1/0, Kári 1/0, Sigmundur 1/0 og Þorsteinn 0/4.

Mörk Narfa: Sigurður 3/0, Snorri 1/0, Jón Raganr 0/1 og Helgi 0/1.