Fréttir

Total items: 1194

NHL deildin á fullri ferð

Dags: 27.10.2005 20:18


jagr.jpg

Einsog flestum íshokkíáhugamönnum er kunnugt var ekkert leikið í NHL deildinni sl. vetur vegna kjaradeilna leikmanna og eigenda liðanna. Þessi mál leystust nú farsællega í sumar og allt fór svo af stað í byrjun október einsog vanalega. Detroit Redwings, Vancouver Canucks og Montreal Canadiens hafa farið mjög vel af stað og eru efst í sínum riðlum á meðan önnur lið, þ.á.m. Phoenix Coyotes, sem sjálfur Wayne Gretzky þjálfar, og Pittsburg Penguins, sem Mario Lemieux á, hafa farið illa af stað og sitja á botninum í sínum riðlum. Þessi tveir kappar, Gretzky og Lemieux, eru sjálfsagt frægustu og þekktustu leikmennirnir í íshokkíinu sem njóta gífurlegra vinsælda í heimalandi sínu, Kanada. Það sem vekur eftirtekt er að markahæsti leikmaðurinn í deildinni er enn eina ferðina Jaromir Jagr, sem nú er að spila sitt 16. tímabil í NHL, en hann er með 10 mörk eftir 15 leiki. ÞAð kæmi ekki á óvart að í vetur myndum við sjá einvígi milli Jagr og Peter Forsberg um stigatitilinn en Peter er kominn með 12 stig eftir aðeis 7 leiki. Upplýsingar um Jagr hér