Dags: 25.10.2005 19:10

Undanfarið hefur verið unnið að því að endurskipuleggja aðstöðu í búningsklefum SR. Í þessu skini hafa leiguskápar verið fluttir til og búningsklefi meistaraflokks færður til. Jafnframt hefur búningsklefi meistaraflokks verið endurbættur þar sem hver leikmaður fær sinn eigin skáp og aðstöðu - sannkallaður lúxus að erlendri fyrirmynd! Yfirumsjón með þessum breytingum hefur haft Þormóður Þormóðsson. Eftir breytinguna er öll aðstaða mun betri og auðveldara að sjá um þrif og eftirlit.