Dags: 22.10.2005 22:16
Í gærkvöldi lék SR við Narfa í Íslandsmóti karla en leikurinn fór fram á Akureyri. SR fór vel af stað í fyrstu lotu er Þorsteinn skoraði glæsilegt mark á 4. mín með viðstöðulausu skoti eftir sendingu frá Gauta. Ekki virtist markið þó kveikja í SR-ingum því þeim gekk illa að finna taktinn í fyrstu lotu. Ýmist voru sendingarnar alltof margar og sóknum lauk varla með skoti, eða að einspil lykilmanna braut niður flæðið í sókninni. Eitthvað hefur Ed þjálfari lesið yfir sínum mönnum því allt annað lið kom inn í aðra lotu. Nú sáum við mjög hratt spil þar sem sóknir enduðu nær undantekningalaust með skoti á markið. Og mörkin létu ekki á sér standa; fyrst skoraði Helgi Páll eftir stoð frá Sindra, síðan kom mark frá Mirek eftir stoð frá Stefáni, og Zednek fylgdi strax á eftir með stoð frá Gauta. Staðan 4-0 og lítið um varnir hjá Narfanum. Þorsteinn bætti svo öðru við og í kjölfarið kom mark frá Sindra, Mirek og Zednek. Úlfar bætti svo enn einu við eftir frákast þrumuskots frá Andy og staðan orðin 9-0. Fleiri urðu mörkin ekki í annarri lotu. SR hélt síðan uppteknum hætti í 3. lotu er Stefán opnaði sinn markareikning með fallegu skoti í vinkilinn. Strax í kjölfarið kom þrumuskot frá Andy er rataði rétta leið og aðein tveimur mín síðar lagði hann upp mark fyrir Stefán. Zednek bætti svo 13. markinu, og kláraði þar með sína þrennu. Zednek var svo aftur á ferðinni skömmu fyrir leikslok er hann var húkkaður niður í hraðaupphlaupi. Snorri dómari dæmdi vítaskot og það kom í hlut Kára að framkvæma það. Kári afgreiddi vítið eins og þaulvanur sóknarmaður og kláraði þar með leikinn. Lokatölur því 14-0 ( 0-1, 0-8, 0-5).
Lið SR átti skínandi dag ef undan er skilinn fyrsta lota. Allar línurnar skiluðu sínu og gott betur. Línurnar eru um margt ólíkar; línan þeirra Gauta, Þorsteins og Úlfars er mjög vel spilandi, hélt pekkinum mjög vel í sóknarsvæðinu og átti mjög góðan dag. Línan þeirra Mireks, Stefáns og Steinars Páls er mjög öflug og byggir mikið á uppspili í kringum Zednek sem opnar mjög fyrir Stefáni og Mirek. Línan hans Helga Páls, sem átti frábæran dag, pressar vel og veldur sífellt usla. Þannig getur SR teflt fram þremur sterkum línum sem léttir róðurinn. Ekki reyndi mikið á vörn SR í þessum leik en hún spilaði nær óaðfinnanlega, með Zednek og Andy í aðalhlutverki, en þessir tveir leikmenn áttu enn einn stórleikinn. Sérstakt hrós fær Birkir fyrir góða frammistöðu en hann tók við varnarhlutverki Guðmundar í fjarveru hans og skilaði því vel. Trausti markvörður kom nú inn í liðið og var öryggið uppmálað.
Lið Narfa var vel mannað að þessu sinni, lék af miklum áhuga og sýndi leikgleði. Þeir máttu sín þó lítils í þessum leik.
Mörk og stoðsendingar: Zednek 3/2, Mirek 2/2, Stefán 2/1, Þorsteinn 2/0, Helgi Páll 1/4, Andy 1/2, Sindri 1/1, Úlfar 1/1, Kári 1/0, Gauti 0/4, Árni 0/1 og Steinar Páll 0/1.