Fréttir

Total items: 1194

SR mætir Narfanum um helgina

Dags: 21.10.2005 17:41


helgi_pall_fyrirlidi_1.jpg

Á morgun, laugardag heldur meistaraflokkur karla norður í land þar sem hann mætir Narfanum úr Hrísey í Narfa/SA skautahölinni á Akureyri kl. 20:00 annað kvöld í Íslandsmótinu. Það hefur víst ekki farið framhjá neinum íshokkíáhugamanni að lið SR hefur spilað mjög vel það sem af er vetri. Liðið hefur geislað af leikgleði og Ed þjálfari hefur getað leyft sér þann munað að geta teflt fram þremur góðum línum. Góðan árangur liðsins má þakka ýmsum þáttum en einn er sá að nýjum fyrirliða SR, Helga Páli Þórissyni, hefur tekist mjög vel að sinna sínu hlutverki sem fyrirliði. Í haust var Helgi einróma kjörinn nýr fyrirliði liðsins af leikmönnum þess, í kjölfar þess er vinsæll fyrirliði SR undanfarin ár, Ingvar Þór Jónsson, hélt í víking til Danmerkur í sumar. Það hefur eflaust verið erfitt að taka við hlutverki Ingvars en Helgi er maður með mikla reynslu í íshokkí og góðan skilning á mannlegu eðli sem hefur nýst honum vel. Hann hefur leyst þetta hlutverk farsællega sem skiptir miklu máli þegar halda þarf utan um hóp einstaklinga með mismunandi væntingar og þarfir. Áfram SR!