Dags: 18.10.2005 08:46
Eins og allir íshokkíleikmenn þekkja er mikilvægt að skautarnir séu ávallt vel skerptir. Til að tryggja enn betur að þessi mál séu í góðu lagi hjá félagsmönnum ákvað stjórn íshokkídeildarinnar að fjárfesta í skerpingarvél og er hún er væntanleg til landsins í næstu viku. Síðan verða seld svokölluð Skerpingarkort á 3000 kr sem er skerping fyrir allt æfingatímabilið. Nánar um þetta seinna.