Fréttir

Total items: 1194

Landsbankamóti 4. flokks lokið

Dags: 16.10.2005 20:05


Í dag lauk Landsbankamóti 4. flokks sem fram fór í Egilshöll. Alls mættu 5 lið til keppninnar, þrjú A-lið og tvö B-lið. Margir skemmtilegir og spennandi leikir fóru fram en leikar fóru þannig að A-lið SR og Bjarnarins unnu þrjá leiki en töpuðu einum og B-Lið SR vann báða sína leiki gegn Birninum. A-lið SA átti fína spretti en varð að lúta í lægra haldi fyrir sterkari sunnanliðum.

Annars voru úrslitin sem hér segir (af heimasíðu Bjarnarins):

Björninn-b - SR-b 1:9

Björninn-a - SR-a 2:1

SA-a - SR-a 5:10

Björninn-a - SA-a 7:1

SA-a - SR-a 2:3

SR-b - Björninn-b 3:1

SA-a - Björninn-a 0:6

Björninn-b - SR-b 3:6

SR-a - Björninn-a 3:1