Dags: 14.10.2005 00:47

Í gærkvöldi mættust í Laugardalnum SR og Björninn í Íslandsmóti karla. Fyrirfram var búist við jöfnum og skemmtilegum leik, enda var síðasta innbyrðis viðureign þessara liða mjög spennandi þar sem bæði liðin sýndu sitt besta. Víst var þessi leikur líka skemmtilegur en yfirburðir SR voru þó alltof miklir til að einhver spenna færðist í leikinn. Í staðinn sáum við einvígi milli SR annars vegar og Alexi Ala-Lahti markvarðar Bjarnarins, hins vegar sem fékk á sig um 70 skot í leiknum. SR komst fljótlega í 2-0 í fyrstu lotu með mörkum frá Stefáni Hrafnssyni og juku forystuna í 4-0 í byrjun annars leikhluta, fyrst með marki frá Stefáni og síðan Helga Páli, fyrirliða Þórissyni. Þegar hér var komið sögu benti fátt annað til þess en að SR myndi kafsigla Björninn, slíkir voru yfirburðirnir í annarri lotu. Björninn náði þó klóra í bakkann með tveimur mörkum, staðan 4-2, sem hleypti smá spennu í leikinn. SR bætti við fimmta markinu og var þar að verki Sindri Már Björnsson en aftur náði Björninn að skora, nú eftir slæm varnarmistök. Ekki létu SR-ingar þetta slá sig út af laginu, héldu sínu hraða spili og bættu við tveimur mörkum fyrir leikhlé, frá Zednek Prochazka og síðan með bylmingsskoti frá Andy Luhovy. Staðan því 7-3 fyrir SR. Í þriðju lotu hélt einstefnan áfram sem skilaði fjórum mörkum, það fyrsta frá Mirek Krivanek, þá frá Þorsteini Björnssyni og síðan með tveimur mörkum frá Steini Rúnarssyni, sem innsiglaði öruggan sigur SR, 11-3.
Óhætt er að segja að SR-ingar hafi með þessum leik undirstrikað rækilega að liðið er illviðráðanlegt þegar það leikur á þessum hraða. Hver einasti leikmaður skilur stöðu sína og samspilið er hratt og nákvæmt, þar sem pökkurinn gengur hratt á milli leikmanna sem skauta af miklum krafti og búa stöðugt til opin svæði fyrir sendingar. Uppspilið er fjölbreytt og skilar liðinu strax inn í sóknarsvæðið og þar gengur leikmönnum vel að spila pekkinum í þröngu spili. SR sýndi það í þessum leik að liðið er vel þjálfað, agað og fullt af leikgleði, og við þessu átti Björninn ekkert svar í þessum leik. Þrátt fyrir enn eina snilldarmarkvörsluna hjá Alexi í Bjarnarmarkinu var það ekki nóg í þessum leik.
Það sem skyggði óneitanlega á skemmtilegan leik að Steinn Rúnarsson slasaðist rétt undir lok leiksins, en hann er nýstiginn upp úr erfiðum meiðslum. Við skulum bara vona að þessi markaskorari sleppi vel frá þessu og komi tvíefldur til leiks.
Mörk og stoðsendingar
SR: Zednek Prochazka 1/5, Stefán Hrafnsson 3/0, Andy Luhovy 1/2, Steinn Rúnarsson 2/0, Mirek Krivanek 1/1, Þorsteinn Björnsson 1/1, Helgi Páll Þórisson 1/0, Sindri Már Björnsson 1/0, Gauti Þormóðsson 0/1 og Guðmundur Björgvinsson 0/1.
Björninn: Brynjar Freyr Þórðarson 1/1, Kolbeinn Sveinbjarnarson 1/0 og Sergei Zak 1/0.