Dags: 10.10.2005 23:08

SR ingar héldu áfram sigurgöngu sinni er þeir mættu SA á laugardaginn. Ekki var sigurinn samt öruggur fyrr en undir lok leiksins því SR-ingar voru ekki mjög sannfærandi framan af, en réttu þó úr kútnum þegar á leið. Framan af var leikurinn frekar ómarkviss og sóttu bæði lið álíka í fyrsta leikhluta, SR ingar áttu þó heldur fleiri skot á mark (17:10). Eitt mark var skorað og var það Stefán Hrafnsson fyrir SR. SR sótti heldur meira í öðrum leikhluta (22:9 skot að marki). Sindri Már Björnsson gerði tvö mörk fyrir SR. Lubomir Bobik og Marian Melus gerðu sitt markið hvor fyrir SA, staðan 3 2 fyrir SR. Þriðji leikhluti fór svo meira fram á vallarhelmingi SA (21:3 skot). Á 51. mínútu skoraði svo Lubomir Bobik jöfnunarmark SA úr hraðaupphlaupi. Við þetta vöknuðu SR-ingar og Sindri Már skoraði sitt þriðja mark mínútu seinna. Stefán Hrafnsson, Gauti Þormóðsson og Mirek Krivanek bættu við 3 mörkum fyrir SR og lokastaðan því 7 -3.
Að leik loknum settust leikmenn svo að snæðingi í boði stuðningsmannaklúbbs SR, var þetta gert sérstaklega til að hægja á því að SA menn komist í form.
SR mörk/stoð: Sindri Már Björnsson 3/0, Stefán Hrafnsson 2/0, Gauti Þormóðsson 1/1, Miren Krivanek 1/1, Zednic Prohaska 0/5.
SA mörk/stoð: Lubomir Bobik 2/0, Marian Melus 1/1, Arnþór Bjarnason 0/1, Matthías Þór Hákonarson 0/1