Fréttir

Total items: 1194

Markmenn í banastuði!

Dags: 10.10.2005 19:16


biggi_markvordur.jpg

Það hefur löngum komið í ljós að góð markvarsla í íshokkí er alger forsenda fyrir góðum árangri í mótum og til eru mörg dæmi þess að markmenn hafi beinlínis fært liði sínu á silfurfati bikarinn. Nægir hér að nefna er Patrik Roy hjá Montreal Canadiens vann Stanley bikarinn í NHL 1993 nánast upp á eigin spýtur, eða þá ævintýraleg markvarsla hjá Tékkanum Dominik Hasek, bæði hjá Buffalo Sabres og Detroit Redwings. Óhætt er að segja að markvarslan á Íslandsmótinu það sem af er, sé búin að vera góð, og þá sérstaklega hjá SR-ingnum Birgi Erni Sveinssyni og Finnanum Alexi Ala-Lahti hjá Birninum, en báðir eru þessir markmenn með vel yfir 90% varin skot. T.a.m. hélt Birgir markinu hreinu í um 165 mín. eða þar til Lubomir Bobik hjá SA tókst að skora gegn honum í öðrum leikhluta í leik SR-SA á laugardagskvöldið - ótrúlega góð frammistaða. En góð markvarsla þýðir einfaldlega að útileikmenn munu taka sig saman í andlitinu og vanda skotin betur og stúdera betur markmennina; þannig viðhelst baráttan milli útispilara og markmanna. Fyrir okkur Íslendinga skiptir hins vegar miklu máli að okkur takist að ala upp góða markmenn sem fá næg tækifæri því ef við ætlum að eiga roð í keppni við aðrar þjóðir, einsog á Heimsmeistaramótinu, skiptir öllu máli að við getum teflt fram sterkum, reyndum markvörðum.

Birgir Örn Sveinsson