Fréttir

Total items: 1194

Átök um helgina.....

Dags: 04.10.2005 21:02


SRSAcombo.jpg

Næstu helgi munu eigast við, í Skautahöllinni í Laugardal, Skautafélag Reykjavíkur og Skautafélag Akureyrar. Síðasta leik þessara liða lauk með yfirburða sigri SR 10 - 0.  Fyrirfram er búist við að þetta verði nokkuð skemmtilegur leikur á að horfa þar sem bæði þessi lið hafa nokkuð af frambærilegum leikmönnum fram að tefla, þó SR með ögn sterkari hóp en SA. Leikurinn hefst kl.20:00 stundvíslega. Allir hokkíunnendur eru hvattir til að skella sér í höllina til að sjá frábært hokkí.

Sama dag mun Narfi heimsækja Bjarnarmenn í bjarnarból Egilshallar og hefst sá leikur kl.16:00.

Áfram SR...... alla leið.