Dags: 02.10.2005 05:26

SR gerði góða ferð norður er þeir mættu SA í Íslandsmóti karla í gærkvöldi, en leikurinn endaði með stórsigri SR, 0-10. SR náði þriggja marka forystu í fyrsta leikhluta enda lá töluvert meira á SA. Ekki tókst SR að fylgja eftir þessari góðu byrjun því í þeim öðrum leikhluta jafnaðist leikurinn mjög og áttu bæði lið sín færi án þess að þeim tækist að skora. Frammistaða SR í þessum leikhluta olli vonbrigðum en þeir bættu úr því í þriðja leikhluta; líkt og í fyrri leikjum SR gegn Narfa og Birninum kom allt annað og einbeittara lið SR inn í þriðja leikhlutann sem beinlínis tók öll völd á ísnum. Ekki leið á löngu þar til allar flóðgáttir hjá SA brustu og SR-ingar bættu við hverju markinu á fætur öðru, eða alls sjö mörkum án þess að SA kæmist á blað. Í þessum leikhluta kom fram skýr munur á úthaldi liðanna og tókst SA t.d. ekki að ná einu einasta skoti á mark SR á meðan SR átti 26 skot að marki.Úrslit leiksins 10 - 0 SR í vil.
Til vitnis um yfirburði SR í þessum leik þá átti SR 57 skot á markið en SA 17. Til samanburðar má geta þess að í síðasta leik SR á móti Birninum átti SR 50 skot á markið en Björninn 16, og í leik á móti Narfanum 17. sept. átti SR 63 skot á markið en Narfi 23. Samkvæmt þessum tölum er bæði vörn og sókn að spila mjög vel í þessum fyrstu leikjum tímabilsins, sérstaklega í þriðja leikhluta. Ennfremur er markvarslan mjög góð hjá SR, eða um 94.5% varin skot hjá Birgi Erni Sveinssyni sem hélt markinu hreinu annan leikinn í röð, en hann hefur nú ekki fengið á sig mark í 142 mínútur, eða síðan í öðrum leikhluta á móti Narfanum 17. september. Þrátt fyrir góða byrjun hjá SR verður að hafa í huga að tímabilið er langt og má minna á að á sama tíma í fyrra unnu SR-ingar SA örugglega en töpuðu síðan fyrir þeim í Úrslitakeppninni sl. vor. En óneitanlega lofar byrjunin góðu hjá SR.
Mörk og stoðsendingar SR (með fyrirvara): Stefán Hrafnsson 3/0, Mirek Krivanek 2/2, Gauti Þormóðsson 2/1, Úlfar Andrésson 1/1, Steinar Páll Veigarsson 1/1, Guðmundur Björgvinsson 1/0, Zednek Prochazka 0/3, Þorsteinn Björnsson 0/2 og Þórhallur Viðarsson 0/2.