Fréttir

Total items: 1194

SR - Björninn í Íslandsmóti 2. flokks

Dags: 30.09.2005 19:53


Í gærkvöldi áttust við SR og Björninn í 2. fl. í Íslandsmótinu en þessi leikur fór fram í Laugardalnum. Þetta var fyrsti leikur beggja liða og bar þess greinileg merki, en mikið vantaði upp á spil og liðsheild, sérstaklega hjá SR. Hvorugu liði tókst að skora í fyrri hálfleik og það var ekki fyrr en nokkuð var liðið á seinni hálfleik er Birninum tókst að brjóta ísinn með marki. Fram að því höfðu liðin sótt á víxl en góð markvarsla kom í veg fyrir að sóknarmenn höfðu árangur sem erfiði. Eftir mark Bjarnarins datt botninn úr leik SR og Grafarvogsmenn bættu við fjórum mörkum, þar af  sá SR um eitt með sjálfsmarki. SR-ingum tókst þó að bæta við einu marki undir lok leiksins, en 1-5 tap var staðreynd. Í þessum leik kom skýrt fram að tímabilið er rétt að byrja hjá þessum liðum en við eigum eftir að sjá mun betri innbyrðisleiki hjá þessum liðum seinna í vetur.