Dags: 29.09.2005 10:20
Skiptimarkaður: Hinn árlegi skiptimarkaður SR með notaðan hokkíbúnað verður haldinn laugardaginn 1. okt kl. 11 - 13 í félagssal SR fyrir ofan stúkuna í Skautahöllinni í Laugardal. Þar er alltaf hægt að gera góð kaup í notuðum og oft nýlegum hokkíbúnaði. Þeir sem vilja selja og eru með mikið dót, þurfa að mæta 15. mín. fyrir opnun og vers sjálfir á staðnum og taka þátt í fjörinu.
Skápar: Skáparnir fyrir 4. og 5. flokk, eru núna tilbúnir en leiguverð er kr. 4.000. Notendur verða sjálfir að koma með lás. Skápar fyrir 3. fl. verða tilbúnir í næstu viku.
Akureyrarferð: Um næstu helgi mætir SR stórveldinu í norðri, SA, í Íslandsmóti karla en þessi leikur fer fram á Akureyri á laugardaginn. Strákarnir okkar hafa byrjað Íslandsmótið mjög vel og sýnt skínandi leik. Nú gefst áhangendur færi á að skreppa með liðinu norður en nokkur sæti eru laus í SR-rútunni. Lagt verður stað kl. 11:15 á laugardaginn frá Skautahöllinni en verð á sæti er kr. 3.000. Hafið samband við Einar (s. 699-6210).