Dags: 27.09.2005 22:50

Í gærkvöldi mættust SR og Björninn í sannkölluðu uppgjöri Reykjavíkurliðanna, en bæði þessi lið unnu næsta auðvelda sigra í fyrsta leik sínum á Íslandsmótinu í síðustu viku. Og þeir fjölmörgu áhorfendur er lögðu leið sína í Egilshöllina fóru ekki fýluferð því leikurinn var mikil skemmtun fyrir áhorfendur. Leikurinn byrjaði strax af miklum krafti, liðin sóttu á víxl þar sem hraðinn sat í fyrirrúmi. Báðir markmenn höfðu nóg að gera og vörðu allt sem á markið kom. Það var langt liðið á leikhlutann er SR skoraði fyrsta markið er Þorsteinn Björnsson lagði upp Úlfar Andrésson er afgreiddi hann snyrtilega í markið. Gott samspil og gott mark og staðan 1-0 eftir fyrstu lotu. Önnur lota var í járnum allan tímann, markmenn aftur í aðalhlutverki, og leikmönnum nánast fyrirmunað að skora. Sérstaklega fóru SR-ingar oft illa með marktækifærin. SR gerði þó vel í þessari lotu því þeir lentu oft í boxinu og þurftu t.a.m. að spila þrír gegn fimm í nokkrar mínútur. Hvorugu liðinu tókst að skora í annarri lotu. Í þriðju lotu dró aðeins af Birninum á meðan SR-ingar virtust eiga heilmikið inni. Skotin buldu á Alexi markmanni Bjarnarins og eitthvað hlaut að láta undan. Það var þó ekki fyrr en á 8. mín. sem SR tókst að skora en þá átti Zdenek Prohasca snilldarsendingu upp á Mirek Krivanek sem sólaði markmannin og renndi pekkinum í netið. Staðan 2-0 og SR komið á fulla ferð. Rúmlega 5 mín. síðar skoraði Mirek aftur, nú með föstu skoti í vinkilinn, eftir laglega sendingu frá Andrew Luhovy, hinum nýja varnarmanni SR. Skömmu seinna skoraði svo Stefán Hrafnsson í hraðaupphlaupi eftir stoðsendingu frá Zdenek. Staðan 4-0. Það sem eftir lifði leiksins lék SR af skynsemi og sá til þess að öruggur sigur væri í höfn.
Einsog áður sagði var þessi leikur mikil skemmtun fyrir áhorfendur og bæði lið reyndu fyrst og fremst að spila hratt hokkí sem gladdi augu áhorfenda. Enda þótt Björninn hafi staðið vel í SR var það betra úthald SR-inga sem gerði gæfumuninn. Allt lið SR átti skínandi leik, vörnin mjög traust og markvarslan hjá Birgi frábær, en hann þurfti oft að eiga við mjög erfið skot og tókst þrátt fyrir það að halda hreinu. Spilið var oft á tíðum stórgott og mikið flæði á pekkinum, þar sem hver leikmaður virtist kunna sína stöðu algerlega. Ekki skemmir það fyrir að hafa leikmenn einsog Zdenek og Mirek, sem ná ákaflega vel saman, og tilkoma Andy í vörnininni styrkir liðið mjög. Hjá Birninum sló Alexi Ala-Lahti markvörður algerlega í gegn með mjög traustri markvörslu en hann varði 46 skot í leiknum. Að venju var góð barátta í liðinu sem gafst aldrei upp.
Mörk og stoðsendingar SR: Mirek Krivanek 2, Úlfar Andrésson 1, Stefán Hrafnsson 1, Zdenek Prohaska (2), Andrew Luhovy (1) og Þorsteinn Björnsson (1).
Smá athugasemd: Það vakti athygli að leikmenn liðanna voru ekki kynntir fyrir leikinn. Þetta er bagalegt þar sem flestir áhorfendur hafa ekkert á móti því að vita númer og nöfn á leikmönnum sjálfsögð virðing við áhorfendur og leikmenn. Endilega að laga þetta í næsta leik.