Fréttir

Total items: 1194

SR-ingar í bíómynd!

Dags: 25.09.2005 19:56


Þá sem sáu þýsku verðlaunamyndina "Lebens ware schön" á föstudagskvöldið á RUV munu sjálfsagt hafa rekið augun í rogastans er þeir sá SR-inga í einu atriði myndarinnar. Málið er þannig til komið að þýska kvikmyndafélagið sem gerði myndina þurfti að taka upp atriði er sýndi eina af persónum hennar í íshokkíleik og fékk til þess SR, og Peter Bolin fyrrum þjálfara SR, til að aðstoða við upptökuna. Þarna sáust bregða fyrir kunnugleg andlit stráka sem nú leika með 2. flokki, en myndin var tekin 2003. Óhætt er að segja að strákarnir hafi sýnt stórleik á ísnum!