Dags: 11.09.2005 00:32

Tveir liðsmenn SR, James Devine og Hallur Árnason, hafa ákveðið að ganga í raðir Narfa frá Hrísey. Er það mikill missir fyrir meistaraflokk SR þar sem þeir hafa verið liðsmenn SR alla tíð. Jákvæða hliðin er sú að þeir hafa ekki ákveðið að yfirgefa íþróttina, einsog margir jaxlar, heldur munu þeir veita gömlum liðsfélögum verðuga keppni á komandi leiktíð. Gaman verður að sjá hvernig til tekst hjá Narfa þessa leiktíð þar sem þeir þóttu verulega sterkir andstæðingar í upphafi síðustu leiktíðar en síðan dró heldur úr þeim þegar líða tók á veturinn. SR mun eiga fyrsta leik í Íslandsmótinu næstkomandi laugardag. Tímasetning á þeim leik verður auglýst síðar.