Fréttir

Total items: 1194

Æfingar utan íss

Dags: 06.09.2005 19:58


off_ice_skill_training.jpg

Í Skautabúðum SR sem haldnar voru í byrjun ágúst var bryddað upp á ýmsum nýjungum í tækniþjálfun enda fylgist Ed yfirþjálfari SR vel með því nýjasta sem er að gerast í íshokkíþjálfun. Sumar þessara æfinga má gera utan íss og enda þótt hausti hratt er sjálfsagt fyrir íshokkíleikmenn að nota góðviðrisdagana til að þjálfa þá tækni sem kannski betur mætti fara í leik þeirra. Þannig má t.d. þjálfa skotin og kylfutæknina utan íss, fyrir utan nauðsynlega þrekþjálfun. Við hvetjum SR-inga til að nota haustið vel, taka vel á í þrekæfingunum sem nú eru að hefjast hjá flestum flokkum undir stjórn Eds, og hafa gaman að þessu.