Fréttir

Total items: 1194

Ný félagslög hjá SR

Dags: 01.09.2005 18:09


Í gærkvöldi var haldinn framhalds-aðalfundur SR þar sem tekin var til umræðu drög að nýjum félagslögum SR. Forsaga málsins var sú að á aðalfundi SR á síðasta ári var ákveðið að leggja út í endurskoðun á félagslögum SR sem þóttu barn síns tíma. Samþykkt var að Sveinn Bjarki Sigurðsson í SR myndi hafa umsjón með þeirri vinnu og skila svo drögum til stjórnar SR fyrir aðalfund þess í vor. Endurskoðunin byggði m.a. á því að skoða félagslög annarra félaga ásamt því að leita í smiðju ÍSÍ. Á aðalfundinum í vor var síðan samþykkt að báðar deildir félagsins fengju drögin til skoðunar og yfirferðar í sumar, en að þeirri vinnu myndi ljúka með því að lögð yrðu fyrir framhalds-aðalfund 31. ágúst yfirfarin drög til umræðu og atkvæðagreiðslu. Á fundinum í gærkvöldi, sem var nokkuð vel sóttur, komu fram margar góðar ábendingar og tillögur og voru síðan hin nýju lög SR samþykkt samhljóða. Hin nýju lög verða kynnt á heimasíðu SR innan tíðar. Við þökkum Sveini fyrir vel unnin störf.