Dags: 30.08.2005 16:02
Í síðustu viku hófst tímabilið formlega með fyrstu æfingunum undir stjórn hins nýja þjálfara SR, Ed Maggiacomo. Nú þegar æfingar eru komnar á fulla ferð er vert að huga að greiðslu æfingagjalda fyrir tímabilið. Hér á eftir eru leiðbeiningar um æfingagjöld í íshokkíið og Skautaskólann og hvernig má greiða þau:
Skautaskóli 4.000 (12 skipti alls)
6. og 7. flokkur 25.000
4. og 5. flokkur 36.000
2. 3. og mfl. 40.000
Þeir sem greiða æfingagjöld fyrir 1. október fá fría SR-sokka.
Skápaleiga er 4.000, fyrstir koma, fyrstir fá (takmarkað framboð)
Boðið er upp á þá nýjung fyrir félagsmenn að fá netfang á hockey.is fyrir kr. 1.500 í árgjald.
Reikningsnúmer félagsins er:
1101-26-32005
k.t. 561092-2309
Það er að sjálfsögðu hægt að greiða félagsgjöldin beint inn á þennan reikning en einnig má borga þau á skrifstofu deildarinnar með Visa og/eða Euro og þá skipta þeim á allt að 7 greiðslur.
Stjórnin