Fréttir

Total items: 1194

Æfingatafla tilbúin; allt á fulla ferð

Dags: 22.08.2005 10:03


Í kvöld, mánudaginn 22. ágúst, hefjast æfingar af fullum krafti hjá íshokkídeildinni en 3. flokkur fer á ísinn kl. 20:15 og 2. flokkur og meistaraflokkur kl. 21:30. Síðan mæta aðrir flokkar, sem og Skautaskólinn, á morgun. Æfingatöfluna má nálgast undir "Nytsamlegt" hér til hliðar. Með nýjum þjálfara fylgja alltaf einhverjar áherslubreytingar á æfingatöflum en þær helstar eru að æfingarnar eru lengri en færri á hvern flokk en í fyrra.