Fréttir

Total items: 1194

Ed kominn til starfa

Dags: 08.08.2005 11:25


ed.jpg

Í síðustu viku kom til landsins hinn nýji aðalþjálfari íshokkídeildarar SR, Ed Maggiacomo, en hann hóf störf hjá SR 2. ágúst. Ed hefur mikla reynslu í íshokkíþjálfun en undanfarin ár hefur hann þjálfað í Danmörku þar sem hann þjálfaði ýmis lið ásamt því að sjá um danska kvennalandsliðið. Með Ed kemur konan hans einnig, Carol, en hún verður Ed innan handar við stjórnun í vetur. SR býst við miklu af Ed en starf hans mun ekki eingöngu snúast um þjálfun á ís heldur einnig meira er lítur að stjórnunarstörfum og almennri uppbyggingu deildarinnar. M.a. af þeim ástæðum er Ed ráðinn í heilsárs starf, sem mun nýtast vel fyrir allan undirbúning vetrarstarfsins en hans fyrsta verk er að sjá um Skautabúðirnar er hefjast þriðjudaginn 9. ágúst. SR býður Ed velkominn til starfa.