Dags: 31.05.2005 23:18

Endaþótt Tékkar hafi sigrað glæsilega á nýafstöðnu heimsmeistaramóti í íshokkí hlýtur árangur þjóða eins og Dana og þá sérstaklega Slóvena að vekja athygli. Báðum þessum þjóðum tókst að halda sæti sínu í deild þeirra bestu á meðan stórþjóðir einsog Þjóðverjar féllu niður um deild. Þegar tölur eru skoðaðar um fjölda leikmanna í þessum löndum rekur mann í rogastans (tafla hér fyrir neðan); Slóvenía er einungis 980 leikmenn skráða!! Samt tekst þessu litla Balkanlandi að spila í efstu deild og standa sig svo vel. Hvernig er þetta hægt? Það væri kannski ekki svo vitlaust að heimsækja landið og sjá hvort við getum ekki eitthvað lært af þeim, því samkvæmt tölfræðinni eru þeir í mesta lagi með helmingi fleiri leikmenn en við Íslendingar. Óneitanlega hlýtur þetta að vera hvatning fyrir smærri íshokkíþjóðir einsog okkur að gera betur, æfa meira og sýna meiri aga. Að sama skapi eru þetta frekar nöturlegar staðreyndir fyrir lönd einsog Þýskaland með sína 26.000 leikmenn. Það vekur líka athygli að Rússland, þaðan sem flestir af efnilegustu ungu leikmönnunum koma, er einungis (!) með um 78.000 leikmenn á meðan lönd einsog Kanada og Bandaríkin eru með um hálfa milljón leikmenn.
Land leikmenn hallir leikm/höll Slóvenía 980 7 140 Danmörk 4255 14 304 Kanada 574125 2501 230 BNA 485017 2500 194 Lettland 2740 10 274 Slóvakía 12375 42 295 Rússland 77702 142 547 Austurríki 8779 24 366 Hvíta-Rússland 2810 10 281 Svíþjóð 65613 292 225 Finnland 52597 216 244 Úkraína 1728 7 247 Tékkland 72075 90 801 Þýskaland 25934 153 170 Sviss 26989 88 307 Kasakstan 1800 7 257