Fréttir

Total items: 1194

Tékkar og Kanadamenn í úrslitaleikinn!

Dags: 15.05.2005 10:39


Í gær fóru fram undanúrslitaleikirnir á Heimsmeistaramótinu í íshokkí en Tékkar mættu þar Svíum og Kanada mætti Rússum. Báðir leikirnir voru hin besta skemmtun og mjög spennandi. Kanada vann Rússa 4-3, eftir að hafa komist í 4-0, og Tékkar unnu Svía 3-2, eftir að Svíar komust í 1-0. Öll eru þessi fjögur lið áþekk að getu en stíllinn nokkuð ólíkur. Kanada spilar t.d. frekar þungt hokkí og einfalt, með mjög reynslumikla leikmenn innan um, á meðan Rússar tefla fram mun meira léttleikandi liði og yngra. Í dag verða svo leikirnir um verðlaunasætin. Fyrst mæta Svíar Rússum í leiknum um bronsið kl.14:00 og verður sá leikur sýndur beint á RÚV. Síðan tekur við sjálfur Úrslitaleikurinn milli Tékka og Kanadamanna kl.18:15 en sá leikur verður sýndur kl.00:00, eftir hefðbundna dagskrá hjá RÚV. Helgi Páll Þórisson verður áfram íþróttafréttamönnum RÚV til halds og traust við lýsingarnar á þessum leikjum.