Dags: 13.05.2005 11:14

Núna um helgina verða úrslitaleikirnir á HM í íshokkí spilaðir en Tékkar, Rússar, Svíar og Kanadamenn unnu sér sæti í úrstlitakeppnina. Okkur til ánægju verða þessir leikir sýndir á RÚV. Dagskráin er sem hér segir:
Undanúrslit 1
Laugardaginn 14.maí kl.14:00 - Rússland gegn Kanada
(beint)
Undanúrslit 2
Laugardaginn 14.maí kl.00:00 - Svíþjóð gegn Tékklandi
(upptekið)
Tapliðin úr þessum viðureignum mætast síðan á sunnudeginum kl.14:00 um
bronsið og verður sá leikur sýndur beint á RÚV. Sigurliðin mætast hins vegar
kl.18:15 í úrslitaleiknum um gullið en sá leikur verður sýndur kl.00:00, eftir
hefðbundna dagskrá hjá RÚV. Helgi Páll Þórisson, leikmaður meistaraflokks SR,
verður íþróttafréttamönnum RÚV til halds og traust við lýsingarnar á þessum
leikjum.