Fréttir

Total items: 1194

Danir halda sér í efstu deild!

Dags: 11.05.2005 00:29


denmark.jpg

Danir sýndu það og sönnuðu að þeim verður ekki fisjað saman í íshokkíinu. Í dag tókst þeim að bjarga sér frá falli úr efstu deild heimsmeistarakeppninnar með 3-2 sigri á Þjóðverjum. Eftir forkeppnina, þar sem 16 bestu þjóðirnar leiddu saman hesta sína í 4 riðlum, varð ljóst að Danir, Þjóðverjar, Austurríkismenn og Slóvenar þyrftu að leika innbyrðis í svokölluðum "fallriðli" (relegation round) um hvaða tvö lið féllu niður í fyrstu deild. Danir unnu bæði Þjóðverja og Austurríkismenn, en Austurríki og Slóvenía falla. Línur eru einnig farnar að skýrast í undankeppninni en 12 lið leika þar í tveimur riðlum, þar sem tvö efstu liðin í hvorum riðli komast í undanúrslit. Í öðrum riðlinum stendur baráttan á milli Rússa, Tékka og Slóvaka, en í hinum riðlinum eru það Svíþjóð, Bandaríkin og Kanada sem berjast á toppnum. Í dag mörðu t.d. Kanadamenn sigur á Úkraínu, 2-1.