Dags: 30.04.2005 08:45
Í gærvöldi tryggði SA sér Íslandsmeistaratitilinn í íshokkí karla er þeir lögðu SR í fjórða úrlsitaleiknum, 7-1, á Akureyri. Þar með unnu þeir úrslitakeppnina 3-1. SR hóf þetta einvígi mjög vel og lagði SA í fyrsta leiknum en svo fór að halla undan fæti á meðan SA óx ásmegin með hverjum leik. SR náði sér aldrei á strik eftir fyrsta leikinn og sýndi sjaldan þann samleik, hraða og baráttugleði sem einkenndi liðið í vetur, og færði þeim Deildarmeistaratitilinn. Á meðan gat SA stöðugt sótt í reynslubankann sem kom sér vel í einvíginu. En svona er íshokkí. Við óskum SA til hamingju með titilinn.