Fréttir

Total items: 1194

Munið uppskeruhátíð SR á laugardag!

Dags: 27.04.2005 22:05


N.k. laugardag verður haldin uppskeruhátið SR en hún stendur frá 10:30 -12:30. Um leið er þetta síðasti ístími vetrarins. Allir leikmenn SR, foreldrar og systkini eru hvött til að mæta og ljúka þannig skemmtilegum vetri. SR getur státað af mjög góðum árangri í vetur því SR náði að vinna Íslandsmeistaratitilinn í 2., 3. og 4. flokki, og eru auk þess í úrslitakeppninni um Íslandsmeistaratitilinn í meistaraflokki. Á uppskeruhátíðinni verður hægt að skauta, grillaðar pylsur í boði og veittar viðurkenningar til leikmanna, foreldra og þjálfara fyrir gott starf í vetur.