Dags: 19.04.2005 09:43

Í gærkvöldi tryggði SR sér Íslandsmeistaratitilinn í 2.flokki er þeir gerðu 5-5 jafntefli við Björninn í hörkuspennandi og skemmtilegum leik. SR mætti til leiks með hálf-vængbrotið lið þar sem fjóra leikmenn vantaði í liðið, m.a. vegna meiðsla og veikinda, en þeim tókst þó að spila mjög vel á köflum gegn áköfu liði Bjarnarins. Ekki voru þó SR-ingar á skotskónum því þeir gerðu sig seka um að klúðra aragrúa dauðafæra sem hefðu átt að tryggja þeim öruggan sigur. Ekki bætti úr skák að SR-ingar voru sendir hvað eftir annað í boxið, eða alls 8 sinnum, á meðan Björninn lenti einu sinni, en Birninum tókst m.a. að jafna leikinn 30 sek fyrir leikslok tveimur leikmönnum fleiri. Leikurinn var hins vegar prúðmannlega leikinn og í raun synd að þessi lið hafi ekki mæst oftar í vetur, slíkt er skemmtanagildi þessara viðureigna. Í liði SR sýndi Gauti Þormóðsson oft snilldartakta, og skoraði m.a. 3 glæsileg mörk, en annars lék liðið allt mjög vel, og gerðu það sem til var ætlast af þeim. Hin mörk SR gerðu Þórhallur Viðarsson, með þrumuskoti frá bláu, og síðan Úlfar Andrésson, eftir skemmtilegt samspil við Gauta.
Með þessum sigri SR bættist enn einn Íslandsmeistaratitillinn í safnið eftir veturinn en áður höfðu 3. og 4. flokkur tryggt sér titilinn í sínum aldursflokki. Til hamingju strákar!